Ný uppskrift - MUGISON buxur

Nýjasta uppskriftin úr smiðju okkar hefur litið dagsins ljós.
Brakandi fersk úr prufuprjóni hjá 6 dásamlegum konum, kærar þakkir til Dóru, Vordísar, Halldóru, Heiðu, Önnu og Þórunnar fyrir prufuprjónið og myndirnar sem eru í þessari færslu. 

Þessar gulu eru prjónaðar úr Katia Merino 100% lit 13 - orange, og þessar bláu úr lit 34 - green blue

Buxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður og í hring.
Uppskriftin er í eftirfarandi stærðum:

  • 0-3 mánaða: 100gr
  • 3-6 mánaða: 150gr
  • 6-12 mánaða: 200gr
  • 1-2 ára: 200 gr
  • 2-4 ára: 250 gr
  • 4-6 ára: 250 gr

Uppskriftin verður á tilboði næstu daga, svo endilega grípið tækifærið.