SNÆFRÍÐUR HNEPPT PEYSA
SNÆFRÍÐUR HNEPPT PEYSA
SNÆFRÍÐUR HNEPPT PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, SNÆFRÍÐUR HNEPPT PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, SNÆFRÍÐUR HNEPPT PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, SNÆFRÍÐUR HNEPPT PEYSA

SNÆFRÍÐUR HNEPPT PEYSA

Petit Knitting
Listaverð
1.100 kr
Tilboð
1.100 kr
Listaverð
Uppselt
Unit price
per 

Þessi uppskrift er á íslensku

Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt þessa fallegu uppskrift.

SNÆFRÍÐUR er prjónuð neðan frá og upp, fram og til baka og í einni heild, þ.e. að ekki þarf að sauma hana saman. Ermar eru prjónaðar í hring. Þegar peysan er skoluð/þvegin stækkar hún aðeins – bæði lengist og breikkar (um ½ -1 sm í hvora átt). Þess vegna virðist peysan jafnvel heldur lítil eftir að hún er komin af prjónunum.

Peysan verður mjög falleg í Giza garninu, laus í sér og þægileg. Hún er léttari flík þegar hún er prjónuð úr bómull en hlý og falleg þegar hún er prjónuð úr Smart.

Efni:
Giza cotton DK frá King Cole, 100 gr dokkur (fæst í Rúmfó). Mæli líka með Smart eða Mandarin Naturel frá Sandnes.

Stærðir og magn:
0-6 mánaða: 150gr 
6-12 mánaða: 150-200gr 
1-2 ára: 200gr 
2-3 ára: 250gr
3-4 ára: 300gr
4-5 ára: 350gr
5-6 ára: 400gr
6-7 ára: 450gr
7-8 ára: 500gr

Það sem þarf:
- hringprjónn nr.4
- Sokkaprjónar nr.4  
- trétölur 6, 7, 7, 8, 8, 8, 8, 9, 9 stk
- nál til frágangs og til að sauma tölurnar í
- prjónamerki
- hjálparprjónn fyrir kaðalprjón

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.