MÁNI TVÍLIT PEYSA
MÁNI TVÍLIT PEYSA
MÁNI TVÍLIT PEYSA
MÁNI TVÍLIT PEYSA
MÁNI TVÍLIT PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, MÁNI TVÍLIT PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, MÁNI TVÍLIT PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, MÁNI TVÍLIT PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, MÁNI TVÍLIT PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, MÁNI TVÍLIT PEYSA

MÁNI TVÍLIT PEYSA

Petit Knitting
Listaverð
1.100 kr
Tilboð
1.100 kr
Listaverð
Uppselt
Unit price
per 

Þessi uppskrift er á íslensku

Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt þessa fallegu uppskrift.

MÁNI er prjónuð neðan frá og upp og í einni heild, þ.e. að ekki þarf að sauma hana saman. Þessi hönnun af peysu er víðari í sniðinu en hinar sem ég hef hannað. Hálsmálið er líka örlítið meira út á axlir. Þegar peysan er skoluð/þvegin stækkar hún aðeins – bæði lengist og breikkar (um ½ -1 sm í hvora átt). Þess vegna virðist peysan jafnvel heldur lítil eftir að hún er komin af prjónunum.

Efni:
Smart frá Sandnes garn

Stærðir og magn:
0-6 mánaða: 150gr (tvær brúnar, ein blá)
6-12 mánaða: 150gr (tvær brúnar, ein blá)
1–2 ára: 200gr (tvær brúnar, tvær bláar)
2-3 ára: 200gr (tvær brúnar, tvær bláar)
3-4 ára: 250gr (þrjár brúnar, tvær bláar)
4-5 ára: 250gr (þrjár brúnar, tvær bláar)
5-6 ára: 300gr (þrjár brúnar, þrjár bláar)
6-7 ára: 350gr (fjórar brúnar, þrjár bláar)
7-8 ára: 350/400gr (fjórar brúnar, þrjár (kannski fjórar) bláar)

Það sem þarf:
- hringprjónar nr.4,5
- sokkaprjónar nr. 3 (má sleppa, eru notaðir í kantinn en hægt að nota nr. 4), nr. 4 og nr. 4,5
-  4, 5, 5, 5, 6, 6, 6 stk. af trétölum (eða eftir smekk, fer eftir tölum)
- nál til frágangs og til að sauma tölurnar í
- prjónamerki

Prjónfesta:
22 L slétt prjón á prjóna nr. 4,5 = 10 sm

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.