Esjar sokkar & Eldar vettlingar
Esjar sokkar & Eldar vettlingar
Esjar sokkar & Eldar vettlingar
Esjar sokkar & Eldar vettlingar
Esjar sokkar & Eldar vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, Esjar sokkar & Eldar vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, Esjar sokkar & Eldar vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, Esjar sokkar & Eldar vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, Esjar sokkar & Eldar vettlingar
  • Load image into Gallery viewer, Esjar sokkar & Eldar vettlingar

Esjar sokkar & Eldar vettlingar

STROFF
Listaverð
1.200 kr
Tilboð
1.200 kr
Listaverð
Uppselt
Unit price
per 

ESJAR sokkar og ELDAR vettlingar eru tvær frekar einfaldar uppskriftir sem henta öllum þeim sem þykir gaman að prjóna. Það sem þessar flíkur hafa fram yfir aðrar er að þær ná langt upp á olnboga og hné og haldast þar af leiðandi betur á barninu. 

ATH að þessar uppskriftir eru einnig partur af settinu BRUGÐIÐ - HEIMFERÐARSETT og STRIKK PRJÓNASETT

ESJAR SOKKAR

Efni
Fyrir þétta og þykka sokka mæli ég með Katia Merino 100% eða Feeling frá Lana Gatto eða Merinocot frá Lana Gatto.
Fyrir fínni sokka (t.d. fyrir ungbörn) mæli ég með Katia Merino Baby eða Mini Soft frá Lana Gatto eða VIP frá Lana Gatto.

Stærð Garnmagn
Nýburi 50 g
3-6 mán 50 g
6-12 mán 50 g
1-2 ára 50 g
2-4 ára 100 g
4-6 ára 100 g
6-8 ára 100 g

 
Það sem þarf
- Sokkaprjónar nr. 3,0 og 3.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Ummál um kálfa
Nýburi: 11 cm
3-6 mán: 12 cm
6-12 mán: 13 cm
1-2 ára: 14 cm
2-4 ára: 14,5 cm
4-6 ára: 17 cm
6-8 ára: 20 cm

Ummál um fót
Nýburi: 10 cm
3-6 mán: 11,5 cm
6-12 mán: 12 cm
1-2 ára: 13 cm
2-4 ára: 14,5 cm
4-6 ára: 17 cm
6-8 ára: 20 cm

Prjónfestan í þessum sokkum er sú að 26 lykkjur á prjóna nr. 3,5 gera 10 cm.

ELDAR VETTLINGAR

Efni
Fyrir þétta og þykka vettlinga mæli ég með Katia Merino 100% eða Feeling frá Lana Gatto eða Merinocot frá Lana Gatto.
Fyrir fínni vettlinga (t.d. fyrir ungbörn) mæli ég með Katia Merino Baby eða Mini Soft frá Lana Gatto eða VIP frá Lana Gatto.

Stærð Magn
0-6 mán 50 g
6-12 mán 50 g
1-2 ára 50 g
2-4 ára 100 g
4-6 ára 100 g
6-8 ára 100 g


Það sem þarf
- Sokkaprjónar nr. 3,0 og 3.5
- Nál til frágangs
- Prjónamerki

Þvermál yfir handarbak
0-6 mán: 5,5 cm
6-12 mán: 6 cm
1-2 ára: 6,5 cm
2-4 ára: 7 cm
4-6 ára: 7,3 cm
6-8 ára: 7,7 cm

Prjónfestan í þessum vettlingum er sú að 26 lykkjur á prjóna nr. 3,5 gera 10 cm.

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Smelltu hér fyrir nánari leiðbeiningar um hvernig uppskriftir eru sóttar eftir greiðslu. 

Hentar ekki að greiða með korti? Hægt er að velja millifærslu sem greiðslumáta í kaupferlinu.