HERA HÚFA
HERA HÚFA
HERA HÚFA
HERA HÚFA
HERA HÚFA
HERA HÚFA
  • Load image into Gallery viewer, HERA HÚFA
  • Load image into Gallery viewer, HERA HÚFA
  • Load image into Gallery viewer, HERA HÚFA
  • Load image into Gallery viewer, HERA HÚFA
  • Load image into Gallery viewer, HERA HÚFA
  • Load image into Gallery viewer, HERA HÚFA

HERA HÚFA

Petit Knitting
Listaverð
850 kr
Tilboð
850 kr
Listaverð
Uppselt
Unit price
per 

Umsagnir prjónara

Enginn hefur skrifað umsögn enn. Smelltu hér til að skrifa umsögn

Þessi prjónauppskrift er á íslensku.

HERA húfa er prjónuð neðan frá og upp og í hring. Mynstrið í húfunni heitir á ensku honeymock comb og er mjög fallegt og mjög einfalt. Í uppskrift er linkur á vídjó sem sýnir aðferðina vel. Húfan er með góðu sniði og hylur vel lítil eyru.  Garnið sem ég notaði er merino ull frá Sandnes og fæst m.a. í Tinnu og í Fjarðarkaup.

Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt þessa fallegu uppskrift.

Stærðir og magn:
0-6 mánaða: 50gr (1 dokka)
6-12 mánaða: 50gr (1 dokka)
1-2 ára: 100gr (2. dokkur)
2-4 ára: 100gr (2 dokkur)
4-6 ára: 100gr (2 dokkur)
6-10 ára: 100gr (2 dokkur)


ATH að uppgefið magn af garni er einungis viðmið þar sem við prjónum öll misfast/-laust.

Það sem þarf:
- hringprjónar nr. 4
- sokkaprjónar nr. 4
- nál til frágangs
- prjónamerki

Prjónfesta:
26 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 4: 10 sm

Ummál:
0-6 mánaða: 32 sm
6-12 mánaða: 37 sm
1-2 ára: 41 sm
2-4 ára: 46 sm
4-6 ára: 50 sm
6-10 ára: 55 sm

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.