RÖKKVI PEYSA
RÖKKVI PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, RÖKKVI PEYSA
  • Load image into Gallery viewer, RÖKKVI PEYSA

RÖKKVI PEYSA

Petit Knitting
Listaverð
1.100 kr
Tilboð
1.100 kr
Listaverð
Uppselt
Unit price
per 

Umsagnir prjónara

Enginn hefur skrifað umsögn enn. Smelltu hér til að skrifa umsögn

Peysan RÖKKVI er prjónuð í hring og neðan frá og upp.

Peysan er auðveld í framkvæmd og mjög skemmtileg að prjóna. Þessi uppskrift hentar bæði þeim sem gæla við einfaldar uppskriftir og þeim sem eru lengra komnir. RÖKKVI gæti líka verið flott í karrígulu, antíkbleiku eða gráu 😊

Með því að ýta á ADD TO CART getur þú keypt þessa fallegu uppskrift.

Efni:
Gran Merino frá Lanas Stop (fæst t.d. í Hagkaup) en hægt er að nota allt garn sem passar fyrir prjóna 4 - 4,5. Mæli með Smart frá Sandnes garn (fæst í Hagkaup, Fjarðarkaup og Rúmfó) og Spuna (fæst m.a. í Hagkaup, Fjarðarkaup og Nettó).

Stærðir og magn:
0-6 mánaða: 150gr (þrjár dokkur)
6-12 mánaða: 200gr (fjórar dokkur)
1-2 ára: 250gr (fimm dokkur)
2-4 ára: 300gr (sex dokkur)
4-6 ára: 350gr (sjö dokkur)
6-8 ára: 400gr (átta dokkur)
8-10 ára: 450-500gr (níu - tíu dokkur)

Það sem þarf:
- hringprjónar nr.4 og nr.4,5
- sokkaprjónar nr.4 og nr.4,5
- 4 stk. af trétölum (eða fleiri, smekksatriði)
- nál til frágangs og til að sauma tölurnar í
- prjónamerki

Prjónfesta:
22 lykkjur sléttprjón á prjóna nr. 4.5 = 10 sm

Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd er vísað á síðu þar sem má hlaða uppskriftinni niður strax. Einnig kemur sjálfvirkur tölvupóstur með hlekkjum á síðuna þar sem uppskriftirnar eru til niðurhals. Hjá sumum lendir þessi tölvupóstur í spam hólfi, og hvetjum við viðskiptavini því til að athuga þar finni þeir ekki póstinn í innhólfi sínu.

Hentar ekki að greiða með korti? Sendu okkur póst á pk@petitknitting.is eða skilaboð á FB og við getum boðið þér að millifæra upphæðina. Uppskriftina færðu svo senda frá okkur.